Elsku mamma mín á fimmtugsafmæli í dag. Til hamingju mútta mín.
Mamma mín er nú stödd á Englandi í enskuskóla. Það eru ekki allar konur á hennar aldri sem hafa þor í að fara einar í skóla í útlöndum í 2 mánuði. Hún virðist skemmta sér konunglega þarna en vonum þó að hún skemmti sér ekki það vel að hún vilji ekki koma heim aftur. Heimilið mitt á Akureyri er að mér skilst að niðurnýslu komið, börnin þróttlítil af næringarskorti og ganga um nánast nakin þar sem allur þvottur er óhreinn. Hvað hefði orðið um mann ef mamma hefði ekki séð um mann eins vel og hún gerði.
Megi hún lifa alla vega 50 ár í viðbót!
laugardagur, september 30, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Elsku Anna Tobba til hamingju með mömmu gömlu, hún stendur sig vel sú gamla, eins og flestar aðrar mömmur en verst að þær þurfi að láta sig hverfa að heiman til að börn og eiginmenn átti sig á þessum máttarstólpum heimilisins en gott þó ef þau gera það. það eru allir að spyrja mig um símanúmerið hennar, ég hef bara ekki hugmynd um það og kannski vill hún ekki láta gefa það upp gott að vera í friði fyrir þessum ættmennum og tengdafólki. Vonum að þú blómstrir í svíþjóð kv. Inga Salóme
Held nú að múttan vilji endilega fá símtöl frá ættmennum. Símanr. hennar er +44 7837340663. Bið alla perverta og einstaklinga sem ekki þekkja til kellu en kunna að rekast inn á þessa síðu, að vinsamlega láta mömmu mína í friði!
Skrifa ummæli