laugardagur, september 23, 2006

Fokk

Ég hata VISA kort....
Var að fá VISA reikning upp á skrilljón en þar sá ég að Noregsflugferðin hafði verið tekin 2x út af kortinu sem og fullt af símainneign hjá Yahoo Voice. Þannig er mál með vexti að ég var svo almennileg að borga með VISA kortinu mínu í gegnum netið, inneign fyrir indversku stelpuna í bekknum, sem hún svo borgaði mér með peningum. Þetta gerði ég nokkrum sinnum sem var svo sem ekkert mál. Nú lítur hins vegar þannig út að hún hafi haldið áfram að nota kortið mitt, því ég gerði þetta í gegnum hennar tölvu og þar hafa allar upplýsingarnar geymst. Annað hvort er það hún sem er svona óprúttin eða þetta er eitthvað tölvufokköpp.
ARRRRG

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jiminn einasti.....þetta er rosalegt!!!
en annars betri fréttir, ég var að setja inn myndir af litlu prinsessunni í fjölskyldunni (að beiðni montnustu ömmunnar) á síðuna hjá lilla Jobba ;)
njóttu vel!! :)