Á föstudaginn er ég að fara á tónleika með hinu sykursæta strákabandi Westlife. Já, kærir lesendur, þið lásuð rétt, Westlife!
Það væri nú gaman að skrifa ekkert meira og láta fólk halda að ég væri að missa vitið en best að ég útskýri þetta nánar.
Samsung er með eitthvert svona VIP kvöld á Café Opera, sem er einn fínasti veitingastaðurinn í Svíþjóð, þar sem fyrrnefnd hljómsveit mun koma fram. Þar sem við hjá söludeildinni erum búin að sprengja festa skala í sölutölum er okkur sem sé boðið á þetta. Við ætlum að hittast heima hjá bossinum áður og flykkja síðan liði á ósköpin.
Er annars að fara á tónleika með Önnu Ternheim deginum áður, spurning hvaða tónleikar verði betri. Hmmm, erfið spurning ekki satt?
þriðjudagur, október 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðileg Jól og takk kærlega fyrir kortið sæta ;o) við stráksi eigum örrugglega eftir að heilsa upp á þig í höfuðborginni og við förum ekki heim aftur fyrr en við höfum fengið pönnsur...
Takk så mykket for treveliga sammankomster i året som snart raser forbi ;-)
Lolo P og straksi
Skrifa ummæli