
Þetta sama fólk heldur áfram að keyra til vinnu, keyra í búðina, keyra í ræktina, keyra með börnin á hinar ýmsustu æfingar og stundum bara að keyra til að keyra.
Sumir segjast hvort eð er ekki vera á nagladekkjum og finnst þeir þá vera að fría sig allri ábyrgð. Heldur fólk í alvöru að mengun að völdum bíla sé bara nagladekkjum að kenna? Mér finnst fólk stundum ekki með fulla fimm.
Hættið bara að keyra svona mikið og hreyfið á ykkur rassgatið og jafnvel brjótið odd af oflæti ykkar og takið strætó.
1 ummæli:
Áfram strætó!!!
ég fíla strætó....ferðast samt allt of sjaldan með strætó, en það er einmitt alveg merkilegt hvað það eru miklir strætó-fordómar hér!! :(
Skrifa ummæli