föstudagur, febrúar 16, 2007

Kynþokkakeppni

Nú hefur í dag staðið yfir hið árlega val Rásar 2 á kynþokkafyllstu konu Íslands. Eins og þetta sé ekki nógu hallærislegt val fyrir gera margir vont enn verra með því að kjósa konuna sína! Kommon kallar! Það veit engin hver konan ykkar er og hún er örugglega ekkert sérlega sexy mama og ef hún væri það yrðuð þið ógeðslega fúlir ef einhver annar myndi kjósa hana. Ef þið viljið gleðja konurnar ykkar látið ykkur detta eitthvað annað í hug en að bögga hlustendur Rásar 2 á upptalningu einhverja Guðrúnar Kristjánsdætra og Júlía Guðjónsdætra úti í bæ.
Spurði annars litla bróður minn hvort hann myndi ekki kjósa mig (að þessu spurði ég smjattandi á bakkelsi, með gleraugu og í flíspeysu af mömmu). Hann svaraði því til að það þætti honum viðbjóðslegt, að honum ætti að finnast stóra systir sín kynþokkafull. Býst sem sé ekki við neinum atkvæðum í ár frekar en hin fyrri.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahahahahahahaah ég fengi sennilega svipuð svör frá bræðrum mínum;) mikið er ég sammála þér samt hvað þetta er ótrúlega hallærislegt að kjósa konuna sína:-/

Nafnlaus sagði...

haha!! já frekar skondið !! Skil hann eiginlega alveg því það er eitthvað perralegt og pínlegt fyrir strák að kjósa systur sína. Hvað með alla gömlu aðdáendurna þína? Þeir hafa kannski ekki kosningarétt ennþá!! Haha nei sorry þarna gekk ég of langt! Þú ert samt alltaf voða sæt og flott í mínum augum :)

Nafnlaus sagði...

Ég myndi kjósa þig

Hrund sagði...

Velkomin til landsins frú mín góð (þótt seint sé frá mér:) )

Endilega segðu mér símann þinn, það stendur til að hafa stjórnmálafræðihitting:) Númerið mitt er sama og í gamla daga og ég er í símaskránni.