þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Sá blái

Vildi benda á að blái liturinn á síðunni hefur enga pólitíska merkingu enda er ég langt frá því að vera blá þegar kemur að stjórnmálum.
Fannst bara viðeigandi að hafa síðuna bláa þar sem hér er fimbulkuldi og ég haldin krónískum handkulda, sem sé er blá af kulda.
Nei, Eygló mín, ég er enn réttum megin í stjórnmálunum og ekki saka mig aftur um slík svik sem það væri að ganga til liðs við óvininn blámann.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gott að heyra.þungu fargi af mér létt.gerði tilraun til að heimsækja þig í dag en þú varst á karólínu.sjáumst seinna.

Nafnlaus sagði...

Já ég leit hér inn í gær og varð satt að segja mjög hissa á þessu litavali.....en gott að heyra að það eru engin svik og prettir í gangi ;)