Lífið á Akureyri heldur sinn vanagang. Ég slæpist hér um og nýjasta áhugamálið mitt er að æfa Smells like teen spirit á rafmagnsgítar bróður míns. Já, maður er töff! Atvinnulaus alþjóðastjórnmálafræðingur að nálgast þrítugt að rembast við að spila unglingarokk á rafmagnsgítar. Þess má þó einnig til gamans geta að einnig hef ég æft ýmis lög sem henta betur mínum aldursflokki, til að mynda hið sívinsæla Vor í Vaglaskógi sem við bróðir minn tókum einmitt upp, svo það er aldrei að vita að við systkinin sláum brátt í gegn.
Annars er ég bara enn að bíða eftir svörum um vinnur sem ég hef sótt um. Svona til að eignast einhvern pening fór ég á stúfana um það hvernig skal sækja um atvinnuleysisbætur. Það er nú ekki fyrir hvern sem er að redda sér svoleiðis. Ef fólk er eitthvað að ergja sig yfir því að einhverjir aumingjar sem nenna ekki að vinna hangi á þessum bótum ár eftir ár, segi nú bara, þetta eru sko engir aumingjar ef þeir gátu í fyrsta lagi orðið sér út um bótarétt og bara vegna þess að þeim hefur tekist það í upphafi verður að bera ákveðna virðingu fyrir því og leyfa þessu augljóslega klára fólki að vera á bótum. Held alla vega ekki að mér takist að fá út nokkrar bætur, slík er skriffinnskan. Frekar súrt að í stað þess að leita að vinnu skuli maður eyða allri orkunni í að sækja um atvinnuleysisbætur.
miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
já ég hef mjög bitra reynslu af því að reyna að fá atvinnuleysisbætur !! by the way eftir mikið vesen og skriffinsku fékk ég þær svo ekki einu sinni. Hér er annars allt á kafi í snjó og Danir alveg ráðalausir og fastir í snjósköflum um allt hehe.
Eg tek undir ad vor í vaglaskóg er yndislegt,bædi lag og teksti.Vona ad tú fáir tetta,en hingad til er tú blokkerud á mig,get allavega ekki komid minum comment á framfæri til tin...........tú ert vonandi búin ad fá vinnu nú,en tad er skrítid ef Akureyrarbær getur ekki notad svona snilling í vinnu....Knús
Veiiiiii,ég gat sennt......
Hehe,enginn snjór á Fjóni......
Sem mér tykir ad vísu hálfleidinlegt,er ný búin ad kaupa tessa fínu snjóskóflu..
já og by the way finnst mér þú super duper cool að spila Nirvana með litla bróður, held að það sé bara "inni" núna að hanga með litlu bræðrunum ;)Ég djammaði til dæmis mikið með mínum á Karó um jólin og er búin að bjóða honum í heimsókn í sumar og hann ætlar amk að koma á hróa þannig að við fáum quality time saman!! :)
Skrifa ummæli