Þá er allt að komast í eðlilegt horf eftir ósköpin í gær. Athugið þó að það var enn umferðarhnútur hér fyrir utan þegar ég fór að sofa. Í fjölmiðlum er ekki um annað rætt en þetta agalega "óveður".
Óskaplega finnst mér samt huggulegt að vera búin að fá snjóinn. Þó að í gær hafi mér þótt hann bölvanlegur. Í morgun var ískalt, sól og snjór og allt svo fallegt. Kom því við í Pressbyrån á leið minni í lestina og keypti mér kaffi tú gó og kanelbulle því mér fannst hugmyndin eitthvað svo hugguleg. Sitja með heitt kaffi og bakkelsi, í lest í stórborg og horfa út um gluggann á sólina og snjóinn. Vinnan var líka mun betri í dag eftir að ég endurheimti samstarfskonu mína úr veikindum. Svo er föstudagur á morgun þannig að ég hef yfir engu að kvarta í þetta sinn. Það hlýtur nú að teljast til tíðinda!?!
fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Ekkert nema gott um þetta að segja...snjór og föstudagur:D Um að gera að líta á björtu hliðarnar;) Heyrði að mamma þín hefði verið í skýjunum með enskuskólann en þetta var víst sami enskuskóli og mamma mín fór í fyrra;) Kærar kveðjur úr kuldanum (en engum snjó;)) í Sviss, heiða
Hér er líka kalt en yndislega fallegt vedur,blessud sólin skýn,alveg logn bædi inni og úti,hafdu gódann dag,,,,,,mús mus
Ég hélt að það væri nú aldrei lognmolla í kringum þig Maja mín.....;)
Hafðu það gott um helgina kæri rebbi minn, hjá mér verður bara vinna og lestur. Og svo auðvitað eru Begga og vinkona hennar að koma í kaupstaðarferð. Búin að seta hreint á í gestaherberginu og súkkulaði á koddann.
Kv. Gyða:=)
Ég sakna kanelbulla úr pressbyran! Þeir eru hrææðilega góðir, og það hljómar eins og fullkominn sænskur morgun að sitja með einn slíkan og kaffi tú gó í lest og horfa út á snjóinn. Já það held ég nú!
Skrifa ummæli