föstudagur, apríl 09, 2010

Exorcist - ekki fyrir viðkvæma


Þegar kemur að hryllingsmyndum er ég algjör gunga. Er reyndar algjör gunga á flestum öðrum sviðum líka en það er önnur saga. Fyrir nokkrum dögum var Exorcist í sjónvarpinu. Ég veit að þetta er svona mynd sem einhverjum finnst bara fyndin því hún er í raun svo fáránleg. Fyrir mér er hún hins vegar bara óhugnarleg. Ég varð alveg skíthrædd að horfa á þetta þó svo að allar persónurnar töluðu þýsku sem hefði átt að draga aðeins úr hryllingsáhrifunum myndi maður halda. Að horfa á þessa viðurstyggilegu andsetnu stelpu var bara of viðbjóðslegt og kóngulóarmúvið niður stigann, mamma mía! Þegar myndinni var nýlokið og kreditlistinn byrjaði að rúlla og ég enn með hjartað í buxunum, byrjaði Óli að grenja. Það var ekki nema miðnætti og hann vaknar aldrei svona snemma, yfirleitt ekki fyrr en þrjú að hann vaknar. Venjulega finnst mér Óli minn alveg það saklausasta og krúttlegasta í heimi en þegar hann byrjaði þarna á miðnætti að gefa frá sér sérkennileg hljóð og haga sér skringilega(fannst mér þá alla vega) fór ég að ímynda mér andsetningu drengsins. Það var því með dálitlum ótta sem ég lagði litla strákinn minn við brjóst mér, milli vonar og ótta að hann myndi æla á mig grænu slími eða byrja að tala tungum. Kannski óþarfi að taka það fram að ekkert slíkt gerðist og hann drakk bara og sofnaði aftur. Eftir lá ég með kjánatilfinningu að láta hryllingsmynd hafa þessi áhrif á mig fullorðna konuna.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha :)er sammála, þetta er vibbaleg mynd!
kv kristrún

Guðný gúlla sagði...

HAHAHA bjáninn þinn!

Inga Salla sagði...

Þetta er sldið fyndið en myndin er hinsvegar viðbjóðsleg og ég var líka skíthrædd þegar ég sá hana fyrir nokkrum árum, þá í annað sinn veit ekki af hverju ég horfði aftur, kannski sjálfspíningarhvöt.

Nafnlaus sagði...

það sem ég skil ekki er af hverju svona myndir eru framleiddar, ég meina af hverju ætti einhver að horfa á þetta (by the way, af hverju í ósköpunum horfðir þú á þetta, var það þýsku æfing?)

Solrun

Anna Þorbjörg sagði...

Sólrún mín, af því að þrátt fyrir allt er skemmtilegt að láta hræða sig, hef gaman af þessu þó ég verði skíthrædd...Klikk, já kannski!

Nafnlaus sagði...

Ja, eg skil thad vel, personulega er eg meira fyrir ad vera skelfd af thriller and horror. Kannski vegna thess ad thær fau horror myndir sem eg hef sed eitthvad af eru svo ferlega lelegar ad thær eru bara faranlegar, hence my question (sa einmit sma but af drag me to hell rett adur en eg skrifadi commentid). Hef annars ekki sed the exorcist svo eg veit ekki nema thad se gæda horror ;) Solrun