
Ég fór svo með Lauru vinkonu minni á Lúsíutónleika eftir vinnu. Á tónleikunum sungu nokkrir kórar þar á meðal barnakór sem var uppáklæddur í þessa hvítu kufla og með kerti. Alvörukerti. Og Lúsían með þau á hausnum. Þeir sem fara á Lúsíutónleika á Íslandi vita að slíkur glæfraskapur er bannaður. Þar er lúsían með rafmagnskerti á hausnum og þar er hún fullorðin kona. En Svíarnir sem eru nú þekktir fyrir allt annað en að sýna óvargætni troða kertum á litlu börnum alveg án þess að blikna. Reyndar var á öðrum hvorum bekk manneskja með vatnsfötu, tilbúin ef Lúsían myndi allt í einu standa í ljósum logum. Allt gekk þó að óskum þó að hár Lúsíunnar hafi verið útbýað í kertavaxi, en ætli það sé ekki skárra en ef það hefði fuðrað upp.
Loksins kom jólaandinn yfir mig með öllum þessu umstangi. Jibbí, kem heim eftir 1 1/2 viku :)
hahahahaha gat ekki annað en hlegið af þessari lýsingu.....sá lúsíuna fyrir mér í ljósum logum....sem á kannski ekki að vera fyndið en þarna sérðu bara hvernig ég er innrætt ;)
SvaraEyðaég er lika illa inraett, mer fannst thad fyndin tilhugsun...
SvaraEyðaekki fylgdi sögunni hvort þér fannst lussekatter góðir? mér finnst þeir nefnilega sjúklega góðir (en fannst þeir ógeðslegir fyrst þegar ég smakkaði- kannski því ég var lítið barn..) og hef ekki fengið í ár og aldir. er hægt að kaupa þá í búðum?
SvaraEyðaStína
Sa sem eg smakkadi var serlega godur. Hef bara smakkad thennan eina en fannst hann lita mun betur ut en their sem haegt er ad kaupa i budunum.
SvaraEyðaJá, eg get nu truad thvi ad mörgum krökkum thyki thetta ekkert spes
mmm..lussekatter!
SvaraEyðaLSH
Mig langar ad vera lúsia........
SvaraEyðaHi... is this Icelandic I see before me??
SvaraEyðaJust wanted to say your cooking looks wonderful!!
I'm sure you speak English. Come and see my blog if you like http://gledwood.tripod.com/blog
It's very different!!