miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Vinna

Eftir 2 viðtöl hef ég nú verið ráðin til vinnu við Samsung Electronic Norden. Ég mun byrja þar 28. ágúst. Það versta við vinnuna er hvað hún er staðsett langt í burtu, tekur um 40-50 mín. að komast þangað, fyrst neðanjarðarlest, svo venjuleg lest og svo strætó. Loksins þegar ég flyt í miðbæinn þá fer ég að vinna í úthverfi sem er öfugt við það sem ég geri núna. Má annars ekki vera að þessu, þarf að halda áfram að þrífa íbúðina fyrir flutningana.

8 ummæli:

  1. Nafnlaus11:25 e.h.

    til hamingju Anna mín, bæði með nýju íbúðina og svo vinnuna. Mér finnst þetta reyndar mjög langt að sækja vinnu en vinna er jú alltaf vinna.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus8:48 f.h.

    Til hamingju med nyju vinnuna og ibudina ad sjalfsogdu:) verst hvad tad er langt i vinnuna:-/ heida h

    SvaraEyða
  3. Til hammó með mað það :) Þessi vinna hljómar fancy. Það getur verið voðalega kósý að sitja með góða bók í strætó/lest/neðjanjarðarlest og gleyma stað og stund. Þú átt svo ipod þannig að þetta verður ekki svo slæmt held ég.

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus11:21 f.h.

    Til hamingju med vinnuna..og íbudina..og takk fyrir afmælissønginn í gær;) vona ad thu hafir thad gott..gangi ther vel ad flytja!

    SvaraEyða
  5. Til hamingju! Glæsilegt hjá þér! Já það er nú örugglega hægt að hafa það bara kósý í lest með bók og tónlist og svona. Gangi þér vel með flutningana!

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus5:20 e.h.

    Til hamingju með vinnuna ;)og góða skemmtun að flytja!

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus2:54 e.h.

    Til hamingju með nýju vinnuna 8o)!
    Frábært, þú varst ekki lengi að redda þessu.

    það er ekkert mál að ferðast aðeins í vinnuna, allt árið 2005 tók það mig 45. min að komast í vinnuna innan Reykjavíkur... bara gaman eins og stína segir að hlusta á tónlist, nú eða hlusta á portúgölsku diska..
    eu chamo me Fjola e eu sou islandesa..

    SvaraEyða
  8. Jæja, hvernig gengur? Ertu flutt, byrjuð í vinnu? Hlakka til að heyra í þér!

    SvaraEyða